Rödd frá Útnyrðingsstöðum - IS-2003-276-212 SELDRödd er leirljós hryssa undan Gusti frá Hóli og Ögrun frá Útnyrðingsstöðum. Rödd er einstaklega geðgóð og glaðlynd hryssa sem er alltaf tilbúin að leggja sig fram fyrir knapann með jákvæðu hugarfari. Hún er 6 vetra, mikið tamin, með frábærar gangtegundir og góðan fótaburð en skeið er óþjálfað en til staðar. Rödd er hross sem er einstaklega gaman að þjálfa og ríða vegna þess hversu jákvæð og viljug hún er en er þó fyrst og fremst frábært efni í óvenju vel ættaða og skemmtilega ræktunarhryssu. Geðslagið er afar gott, hún er taugasterk, mannelsk, hreingeng og viljug. Rödd er enn að bæta sig og styrkjast á gangtegundum og hér er einnig í þjálfun systir hennar ári yngri sem lofar mjög góðu. Seld
Við seldum 50% af Rödd til Monique Stráhli í Sviss. Rödd verður áfram á Íslandi og við fáum tækifæri til að eignast afkvæmi undan henni og erum mjög ánægð með það. Hún verður sýnd í vor og fær svo að fara í girðingu hjá góðum stóðhesti.
Frábært tækifæri til að eignast framtíðar ræktunahryssu.





|