Roði frá Eyjakoti SELDURRoði frá Eyjakoti dökksótrauður er foli á 6 vetur undan Funa frá Vindási og Joddu frá Enniskoti. Roði er einstaklega fallegur, geðgóður og mikið töltgengur hestur. Hann er reistur og ber sig vel í reið og töltið er mjög mjúkt og verður rúmt og skrefmikið. Hann brokkar einnig vel og stekkur upp á báðar hendur og er mjög skemmtilegur í reiðhallarvinnu. Kann töluvert og er vel taminn en á þó mikið inni. Kominn á beinu brautina og skemmtilegt verkefni fyrir einhvern sem langar að taka við auðveldum og efnilegum hesti og gera hann enn betri. Fljótlega munu koma inn myndir af Roða í reið. Seldur.

|