 Í allan fyrravetur komu hingað vikulega í reiðtíma gullfallegar og duglegar sveitastelpur úr Vatnsdalnum og núna eru þær mættar aftur til að læra hjá Christínu. Þessar duglegu stelpur eru dætur Jóns Gíslasonar og Elínar Schrijver á Hofi í Vatnsdal og heita Lara Margrét (vinstri) og Ásdís Brynja (hægri). Þær eru hér með Christínu og Garpi sem var svo vænn að stilla sér upp á myndinni með þeim. Stelpurnar koma með hestana sína með sér og eru sannkallaðir fyrirmyndarnemendur og bæta við sig í hverjum tíma, jákvæðar og duglegar. Alveg eins og það er gaman að fylgjast með hvernig tamningatryppi breytast og læra meira í dag en í gær þá má segja það sama um krakka sem koma í reiðtíma og bæta sig í hvert sinn. Ásdís og Lara ætla að koma til okkar á mánudögum í vetur og það verður gaman að fylgjast með hvernig gengur hjá þeim enda bráðungar og efnilegar hestakonur hér á ferðinni. Þær ættu ekki að verða í vandræðum stúlkurnar með hestefnin í framtíðinni þar sem þau Hofshjón eru þekkt fyrir að vera vel ríðandi og ekki í vandræðum með að komast á milli bæja.
Þegar birta tekur þá er lofað mynd af dömunum á hestbaki.
|