ForsíðaUm okkurHestarÞjónustaSambandStaðsetningÞingeyrarTenglarPeysur
04.02.2010 - Svona var reiðfærið á Þingeyrum í dag

Eftir leiðinda slabb og hlýindi síðustu vikur sem skemmdi allt reiðfæri fyrir okkur þá hefur sem betur fer fryst aftur og Húnavatnið orðið ísilagt enn á ný. Hér er því besta reiðfæri í víðri veröld þessa dagana og ísinn hreint út sagt frábær. Hann er reyndar alveg glær og þá verða sumir hestar hræddir og ekki eins öruggir á svellinu - en góðir samt! Hægt er að horfa á botn vatnsins í gegn um ísþekjuna og af og til má sjá silung skjótast í vatninu undir ísnum og þá geta reyndar komið smá kippir í tryppin þegar þau verða vör við hreyfingu undir fótum sínum. En sem sagt - hreint himnaríki á jörð og vonandi að veðrið haldist svona sem lengst, stillur, frost og ísi lögð vötn. Ekki sem verst lífið þessa dagana.

Kannski þessi vísa hafi orðið til við svipaðar aðstæður:

Stynur frón með stórhljóðum,
stáls við skóinn harða.
Þegar Jón á Þingeyrum,
hleypir ljóni gjarða.

back-newsitem

Þingeyrar • Blönduós • IS-541 • Ísland • Sími: 452-4365 • thingeyrar@thingeyrar.is