 Myndin sem hér birtist hefur hangið á ískápnum hér á heimilinu í nokkur ár og var klippt út úr Morgunblaðinu af þeirri ástæðu að á henni sjást hreint ótrúleg tilþrif og kraftur, þó tilefnið sé kannski svolítið glannalegt, þ.e. að murka lífið úr nautgripum. En engu að síður þá er ekki hægt annað en dáðst að því hvað hestar og menn geta gert saman. Það fyrsta sem manni dettur í hug er að sekúndubroti eftir að myndin var tekin þá hafi maður og hestur misst jafnvægið og dottið....en það líklegra er að það hafi ekki gerst. Í öllu falli má þarna sjá farið algjörlega á mörk jafnvægisins, enda tyllir hesturinn nánast einungis í eina hóftá. Allavega.....myndin er flott og ljósmyndarinn náð að fanga margvísleg hughrif með því að smella af á mjög svo dramatísku augnabliki. |