 Það stendur mikið til á morgun á bænum. Hvorki meira né minna en þrjú frumtamningarpróf verða haldin hér á bæ. Þau sem taka próf eru Sonja sem er verknemi hér á Þingeyrum og svo fá Hanna Lindmark og Heimir sem eru hjá Óla á Sveinsstöðum að taka próf hér til að geta nýtt sér reiðhallaraðstöðu. Það var því mikið um að vera í dag á bænum, 9 hestar baðaðir og snurfusaðir fyrir stóra daginn og farið í að æfa og fínpússa smáatriði fyrir prófið. Veðrið var frábært í dag og verður svo vonandi á morgun líka, vorblíða og logn. Að loknu þessu pófi taka svo við þjálfunarhestar næstu vikurnar fram á vor, afar krefjandi og skemmtilegt verkefni sem gaman er að vinna í þegar sól hækkar á lofti og vor er í lofti, eins og var reyndar í dag. Hér á bæ fara í prófið hryssan Pífa frá Hæli undan Gammi frá Steinnesi, Hrísla frá Þingeyrum undan Rökkva frá Hárlaugsstöðum og Hrönn frá Hvoli og Ýmir frá Þingeyrum undan Sólon frá Skáney og Freyju frá Þingeyrum. Tuff...tuff krakkar þetta verður "pís of keik".......:)...............Sonja >>

Sjarmörinn Heimir

............og Hanna Lindmark.....
|