ForsíðaUm okkurHestarÞjónustaSambandStaðsetningÞingeyrarTenglarPeysur
05.05.2010 - Þjálfunarhestaprófi lokið

Þegar lítið er um að vera hér á heimasíðunni þá er það ekki merki um að hér sé lítið um að vera heldur að svo mikið sé að gera að ekki gefist tími til að setja efni inn á síðuna. Þannig hefur það verið upp á síðkastið og þess vegna fátt um fréttir þessa dagana. En það er þó ekki hægt að sleppa því að segja frá því að í gær var haldið hér þjálfunarhestapróf hjá verknemanum henni Sonju. Prófinu var flýtt um viku vegna hestapestar og gekk alveg eins og í sögu. Á myndinni má sjá Sonju með einum af þjálfunarhestunum sínum Baldri undan Freyju frá Þingeyrum og Adam frá Ásmundarstöðum. Tamningar ganga vel og margir hestar í húsinu, allir lausir við hestapest ennþá utan einn sem er búinn að vera veikur í upp undir einn mánuð.

back-newsitem

Þingeyrar • Blönduós • IS-541 • Ísland • Sími: 452-4365 • thingeyrar@thingeyrar.is