 Það hefði verið of gott til að vera satt að sleppa við hestapestina alræmdu sem nú geisar á Íslandi - og núna á fullu hér á Þingeyrum. Flestallir hestar veikir og allsherjarfrí gefið í hesthúsinu enda ekki um annað að ræða þegar annarhver hestur er hóstandi og með grænan hor. Gat nú skeð þegar sólin skín upp á hvern dag og vorið á fullu. En það þýðir víst ekki að væla yfir því frekar en öðru sem maður hefur ekkert vald yfir og vonandi að pestin gangi hratt yfir og að við komumst fljótt í hnakkinn aftur. Þangað til verður tíminn notaður til að taka til alls staðar sem hægt er, þrífa reiðtygi, gera við hestateppi og bara allt sem ekki tengist því að vera á hestbaki. Sem er svo sem ágætt þar sem aldrei vinnst tími til að gera þessa hluti þegar verið er að ríða út og þjálfa. Sem sagt, innivinna og þrif næstu daga!! |