ForsíðaUm okkurHestarÞjónustaSambandStaðsetningÞingeyrarTenglarPeysur
14.05.2010 - Fríða með folaldið sitt

Það eru komin 4 folöld á bænum en ekki verið stund til að skjótast í myndatöku fyrr en núna. Framtíðardóttirin Fríða kastaði í gær jörpum hesti undan Gaumi frá Auðsholtshjáleigu og ekki verður sagt að hann sé beysinn blessaður. Allur klesstur og krumpaður eftir allt að 12 mánaða veru í bumbunni á mömmu sinni. Eyrun eins og flugvélahreyflar og miðhlutinn ansi stuttur. EN....HEY....er ekki ungviði alltaf fallegt? Allavega hann er með fjóra fætur, haus og búk og er kominn vel á spena og svo er bara að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér fyrir litla jarp sem sennilega fær nafnið Flaumur.

back-newsitem

Þingeyrar • Blönduós • IS-541 • Ísland • Sími: 452-4365 • thingeyrar@thingeyrar.is