 Þessir litlu hestar voru að kynnast niðri á túni hér í morgun með miklum tilþrifum. Sá litli rauði er undan Gammi frá Steinnesi og átti að verða rauðskjóttur en sá brúni undan Glym frá Seljabrekku og bleikálóttri hryssu og átti að verða vindóttur eða bleikálóttur. Báðir sviku sem sagt væntingar eigenda sinna um fagra liti og mættu í heimin í þeim skammarlegu litum rauðum og brúnum!! Eigendunum til huggunar má benda á að bestu hestar landsins hafa yfirleitt verið rauðir eða brúnir og því aldrei að vita nema þessir litlu baukar eigi eftir að slá í gegn í framtíðinni þrátt fyrir litinn. |