 Í dag fóru 3 hryssur Þingeyrabúsins undir stóðhesta og ein komin nú þegar. Salka frá Akureyri sem haldið var geldri í fyrra vegna þess að hún hafði kastað haustfolöldum síðustu ár, fór undir gæðinginn Stála frá Kjarri, Fríða með litla Gaumsoninn sinn sem sést í fréttinni hér á undan fór undir Stiganda frá Stóra Hofi og Bleikálótt hryssa sem er í eigu Selmu Svavarsdóttur og er undan gæðingamóðurinni Hlökk frá Hólum og Hilmi frá Sauðárkróki fór undir Sólon frá Skáney. Í Reykjavík er svo Klettsdóttirin Dís frá Þingeyrum komin til Þrists frá Feti þannig að góð von er í brúnskjóttan glæsigrip að ári. Dís er reyndar til sölu þannig að hver veit nema eitthver annar en við fái að njóta Framtíðarskjóna eða skjónu.
Salka áður en hún lagði upp í ferðina suður>>> |