ForsíðaUm okkurHestarÞjónustaSambandStaðsetningÞingeyrarTenglarPeysur
20.05.2010 - Hestar virðast á batavegi

Í dag sprungum við Christína á limminu og ákváðum að fara skipulega yfir hrossahópinn og kanna pestarstöðuna með "vísindalegum" hætti. Enn er að vísu hóstað af og til og horslummur í sumum nefjum en flestir af þeim hestum sem voru teknir í smá þjálfun í dag virtust orðnir í lagi. Að sjálfsögðu var bara farið mjög rólega, hringteymt og riðið á hægu feti og brokki en dagurinn gaf góða raun og verður haldið áfram á morgun að fara aðeins á bak og þreifa sig áfram. Pestin er því voandi að fara hratt hjá garði hér en ríflega 2 vikur eru síðan fyrstu einkenni gerðu vart við sig fyrir utan í einum hesti sem hefur sýnt einkenni í rúmlega 2 mánuði án þess þó að vera mikið veikur eða með hita. Við krossleggjum fingur og vonum hið besta enda fátt leiðinlegra en að horfa á hrossin brúkunarlaus á þessum yndislega árstíma sem vorið er.

     Á myndinn er Baldur frá Þingeyrum sem í dag var sprækur sem lækur>>>

back-newsitem

Þingeyrar • Blönduós • IS-541 • Ísland • Sími: 452-4365 • thingeyrar@thingeyrar.is