 Um helgina var góða veðrið notað til að taka myndir fyrir Knapamerkjabækur og þá náðist þessi skemmtilega mynd af Christínu og honum Tind þar sem við vorum að taka myndir af tamningavinnu með vað og snúrumúl. Tindur er og hefur verið einkaverkefni Christínu síðan hún byrjaði að vinna hér og hún sér alltaf það besta í þessum stórmyndarlega hesti sem er stórmerkilega ættaður undan Angadóttur og Núma frá Þóroddsstöðum. Það rennur sjálfsagt mörgum tamningamanninum kalt vatn á milli skinns og hörunds að heyra þessi tvö nöfn, þ.e. Angi og Númi í sömu setningu en merklegt nokk, Tindur hefur meira að segja verið notaður í sætisæfingar hér á bæ. Allavega myndin er skemmtileg og ratar því hér í þessa "ekki" frétt. |