 Í morgun var kominn ný lítil hryssa í hrossahópinn hér á Þingeyrum. Rauðblesótt undan Gammi frá Steinnesi og Hrönn frá Hvoli og er þetta þá þriðja rauðblesótta hryssan sem hún færir okkur, ein er til undan Rökkva frá Hárlaugsstöðum og önnur fæddist í fyrravor, gullfalleg undan Sóloni frá Skáney og gerði sú okkur þann óleik að drepast í vetur alveg fyrirvaralaust. En þó litla hryssan hafi átt að vera skjótt þá getur maður nú ekki fúlsað við svona fallegri blesu heldur verður að hugga sig við að ekki kom rauður, einlitur hestur. Þá eiga næst að kasta Embla og mamma hennar Freyja en þær mæðgur ganga með gæðingsefni undan Hljóm frá Kvistum og Glym frá Seljabrekku og eru vonirnar að sjálfsögðu bundnar við að fá eina fífilbleika hryssu og aðra vindótta. |