ForsíðaUm okkurHestarÞjónustaSambandStaðsetningÞingeyrarTenglarPeysur
31.05.2010 - Lofið þreyttum að sofa

Gamla Þoka er búin að vera í góðu vetrarfríi með vinkonu sinni henni Perlu "norðurfrá" í vetur. Þær stöllur hafa séð um sig sjálfar og ekki verið borið í þær hey eða annað fóður en ekki að sjá að það hafi gert þeim neitt slæmt. Þær eru feitar og pattaralegar en nú taka sumarstörfin við; allavega að því marki sem hestapest lofar. Það verður þó að segjast að ekki lítur vel út með heimsóknir hestamanna í sumar þar sem fjárans hestapestin ætlar að draga dilk á eftir sér varðandi útreiðar og annað hestahald. Það eru því líkur á að Þoka geti fengið sér marga svona fegrunarblundi í sumar og hefur hún sjálfsagt ekkert á móti því enda mun skárra en að þramma fram og til baka um Þingeyrasand með mannskepnu á baki. Hún haggaði sér allavega ekki í morgun þegar hundurinn hnusaði af henni og teknar af henni myndir í bak og fyrir.

back-newsitem

Þingeyrar • Blönduós • IS-541 • Ísland • Sími: 452-4365 • thingeyrar@thingeyrar.is