ForsíðaUm okkurHestarÞjónustaSambandStaðsetningÞingeyrarTenglarPeysur
31.05.2010 - Letilíf

Hrossin á bænum hafa það gott þessa dagana ef undan er skilinn einn og einn hósti sem enn virðist vera að angra þau. Tamningakonan komin í frí til Þýskalands og flest hross komin út á beit. Þau eru ansi ánægð og líður greinilega afar vel að hreiðra um sig í brekkunni fyrir neðan bæinn. Það er gaman að fylgjast með þeim og skapast mörg skemmtileg myndefni og þá er um að gera að hlaupa út og munda myndavélina. Þau hafa greinilega sína rútínu þar sem um hádegið leggjast þau yfirleitt flestöll og fá sér góðan lúr í sólinni. Þessa dagana er því verið að sinna undirbúningi fyrir sumarið, taka til og vinna allskyns verk sem sitja á hakanum þegar verið er að ríða út á fullu.

back-newsitem

Þingeyrar • Blönduós • IS-541 • Ísland • Sími: 452-4365 • thingeyrar@thingeyrar.is