 Á síðasta föstudag kastaði hún Freyja okkar enn einu myndarfolaldinu og í þetta sinn færði hún okkur ljósrauða og stjörnótta hryssu. Faðirinn er Glymur frá Skeljabrekku og er folaldið einstaklega léttbyggt og fíngert og líkist sennilega föðurnum meira en móðurinni sem oft hefur komið með stór og mikil folöld. Freyja hefur verið afar farsæl ræktunarhryssa hjá okkur enda undan Framtíð gömlu sem einnig færði okkur marga góða hesta. Það er nú enginn slorhestur sem Freyja gamla fær að fara til næst heldur fær hún að hitta gamla höfðingjann Orra frá Þúfu og eru miklar vonir bundnar við þá ferð hennar suður á land. |