ForsíðaUm okkurHestarÞjónustaSambandStaðsetningÞingeyrarTenglarPeysur
31.05.2010 - Og enn eitt....

Embla Freyjudóttir er köstuð og okkur til ánægju kom hún með hryssu eins og móðir hennar Freyja. Þá eru hryssurnar orðnar fjórar sem við höfum fengið þetta vorið en Fríða systir Emblu einnig undan freyju kom með jarpan hest undan Gaumi. Litla hryssan hennar Emblu er sótrauð eins og mamman, stór og myndarleg en eyrun hefðu mátt vera minni! Folaldið er undan Óm frá Kvistum og var vonast eftir bleiku en sótrautt er líka alveg ágætt. Við erum allavega glöð með að hafa fengið hryssu. Ekki er alveg búið að ákveða hvaða hest Embla fer undir en Arður frá Brautarholti er vænlegur kandidat þar sem þar er á ferðinni vel ættaður og góður hestur sem verður að Gröf hér steinsnar frá okkur.

Þá er næst að kasta hún Tíbrá en hún er alls óskyld og af allt öðru sauðahúsi en þær mæðgur og systur, Freyja, Embla og Fríða. Tíbrá var hjá Sveini Hervari frá Þúfu í fyrra þannig að reikna má með brúnu, rauðu eða jörpu....vonandi hryssu.

back-newsitem

Þingeyrar • Blönduós • IS-541 • Ísland • Sími: 452-4365 • thingeyrar@thingeyrar.is