 Jæja það er ekki hægt að segja annað en að við höfum verið dugleg að halda utan um hrossaræktina upp á síðkastið. Allar hryssur kastaðar utan ein og allar komnar undir hesta aftur nema Embla sem bíður eftir að Arður frá Brautarholti komi á norðurlandið sem verður vonandi fljótlega. Á föstudaginn var farið í heljarinnar ferð suður á land í öskumistri og hryssur keyrðar undir hesta. Freyja fór undir höfðingjann Orra og Hrönn í Skáney undir Sólon. Rödd sem var á suðurlandinu var hins vegar keyrð norður og undir kappann Kappa frá Kommu og Dís sem fór undir Þrist frá Feti kom heim vonandi fengin. Fríða er hjá Stíganda frá Stóra Hofi og Salka hjá Stála - þannig að nokkrir gullmolar fæðast vonandi næsta vor.
Litla blesa hennar Hrannar fór með mömmu sinni í Skáney að hitta Sólon |