 Það eru ekki allar hryssur á bænum keyrðar á milli landshluta til að halda þeim. Heimahesturinn Vökull verður líka að fá að leika sér enda eitt fallegasta veturgamla tryppið á bænum undan honum. Hann fékk því að hitta nokkrar heimahryssur í vikunni og var afar glaður. Hann gaf sér þó góðan tíma til að éta áður en hann fór að spjalla við hana Ösp gömlu en hún er orðin 26 vetra og því ekki talið við hæfi að fara með hana að heiman undir stóðhesta. Gamla Ösp var geld í fyrra og nú er bara að sjá hvort Vökli tekst það það sem öðrum mistókst í fyrra og það er að fá þá gömlu til við sig. Það er til nokkurs að vinna þar sem Ösp er móðir margra gæðinga sem hafa fæðst hér á bæ þó það verði víst líka að viðurkennast að hún er líka móðir hrossa sem hafa velgt okkur undir uggum þó þau séu mun færri en þau góðu sem hún hefur skilað.

|