 Andri hefur alltaf verið sérfræðingur í að trufla mömmu sína og þegar verið var að taka myndir af nýjum hestapeysum um daginn þá mátti hann til að sprella smá. En þess má geta að það var verið að bæta við á "peysusíðunni" nokkrum nýjum lopapeysum. Þessa dagana er prjónað af kappi í öllum frítíma til að undirbúa útgáfu á prjónabók með uppskriftum af hestapeysunum. Vonandi tekst að koma bókinni út með haustinu!! |