HomeAbout usHorsesServicesContactLocationÞingeyrarLinksSweaters
08.07.2010 - Brrrr....kalt og blautt

Það var heldur kalt og hráslagalegt að fara yfir Húnavatnið í gær enda hávaðarok og skítakuldi. En það þýðir ekki að hætta við í miðri hestaferð þó veðrið sé leiðinlegt. Reynslan er reyndar sú að þó veðrið sé kalt og hráslagalegt þá hlýnar manni nú yfirleitt þegar komið er í hnakkinn. Þessi rekstur innihélt í kring um 100 hross og náðu rekstrarmennirnir að halda öllum hópnum saman yfir vatnið og geri aðrir betur. Búðarferðin á Blönduós var nýtt í að skjótast niður að vatni við Akur og taka myndir og við fyrstu sýn sýnist að margar frábærar myndir hafi náðst. Þessi gefur forsmekkinn en eftir er að fara yfir hinar 400 sem voru teknar í ferðinni!

back-newsitem

Þingeyrar • Blönduós • IS-541 • Ísland • Sími: 452-4365 • thingeyrar@thingeyrar.is