12.07.2010 - Ekki dirfast að koma nær
Þessa dagana eru 2 kettlingar á bænum. Gamla Berta er ótrúlega seig að koma með lítil örverpi af og til þó svo að með réttu ætti hún fyrir löngu að vera komin úr "kettlingaeign". Ómögulegt...
more-news
|
|
02.07.2010 - Nýjar myndir af Þraut
Þá er loksins búið að koma því í verk að taka nýjar myndir af henni Þraut. Hægt er að skoða þær undir liðnum hér til hliðar - "Hestar til sölu". Þraut er úrvalshryssa sem hentar...
more-news
|
|
16.06.2010 - Vökulsbörn
Hann Vökull okkar á nokkur afkvæmi hér og þar þrátt fyrir að vera hvorki sýndur eða dæmdur stóðhestur í fremstu röð. Í Litla Dal hjá Sigurbjörgu og Svavari eru til nokkur snotur tryppi undan...
more-news
|
|
07.06.2010 - Vökull fær líka að leika sér
Það eru ekki allar hryssur á bænum keyrðar á milli landshluta til að halda þeim. Heimahesturinn Vökull verður líka að fá að leika sér enda eitt fallegasta veturgamla tryppið á bænum undan honum. Hann fékk...
more-news
|
|
07.06.2010 - Hrossaflutningar út og suður
Jæja það er ekki hægt að segja annað en að við höfum verið dugleg að halda utan um hrossaræktina upp á síðkastið. Allar hryssur kastaðar utan ein og allar komnar undir hesta aftur nema Embla sem bíður eftir...
more-news
|
|
31.05.2010 - Og enn eitt....
Embla Freyjudóttir er köstuð og okkur til ánægju kom hún með hryssu eins og móðir hennar Freyja. Þá eru hryssurnar orðnar fjórar sem við höfum fengið þetta vorið en Fríða systir Emblu einnig undan...
more-news
|
|
31.05.2010 - Enn eitt folaldið fætt
Á síðasta föstudag kastaði hún Freyja okkar enn einu myndarfolaldinu og í þetta sinn færði hún okkur ljósrauða og stjörnótta hryssu. Faðirinn er Glymur frá Skeljabrekku og er folaldið einstaklega léttbyggt...
more-news
|
|
31.05.2010 - Letilíf
Hrossin á bænum hafa það gott þessa dagana ef undan er skilinn einn og einn hósti sem enn virðist vera að angra þau. Tamningakonan komin í frí til Þýskalands og flest hross komin út á beit. Þau eru ansi ánægð...
more-news
|
|
31.05.2010 - Lofið þreyttum að sofa
Gamla Þoka er búin að vera í góðu vetrarfríi með vinkonu sinni henni Perlu "norðurfrá" í vetur. Þær stöllur hafa séð um sig sjálfar og ekki verið borið í þær hey eða annað...
more-news
|
|
25.05.2010 - The dynamic duo
Um helgina var góða veðrið notað til að taka myndir fyrir Knapamerkjabækur og þá náðist þessi skemmtilega mynd af Christínu og honum Tind þar sem við vorum að taka myndir af tamningavinnu með vað og snúrumúl...
more-news
|
|
20.05.2010 - Hestar virðast á batavegi
Í dag sprungum við Christína á limminu og ákváðum að fara skipulega yfir hrossahópinn og kanna pestarstöðuna með "vísindalegum" hætti. Enn er að vísu hóstað af og til og horslummur í sumum nefjum...
more-news
|
|
14.05.2010 - Fríða með folaldið sitt
Það eru komin 4 folöld á bænum en ekki verið stund til að skjótast í myndatöku fyrr en núna. Framtíðardóttirin Fríða kastaði í gær jörpum hesti undan Gaumi frá Auðsholtshjáleigu...
more-news
|
|
12.05.2010 - Oj bara....HESTAPEST Á FULLU
Það hefði verið of gott til að vera satt að sleppa við hestapestina alræmdu sem nú geisar á Íslandi - og núna á fullu hér á Þingeyrum. Flestallir hestar veikir og allsherjarfrí gefið í hesthúsinu...
more-news
|
|
23.03.2010 - Sumir eru jafnari en aðrir
"Sá sem er frekur fær ekki neitt" var mér kennt í gamla daga. Smá saman hef ég komist að því að þetta er hreint bull. Ætti frekar að vera "sá sem er ekki frekur fær ekki neitt"
Þetta veit hann Vökull...
more-news
|
|
12.03.2010 - Til hamingju krakkar!!!
Hjartanlega til hamingju með að vera búin að ná fyrsta áfanga verknámsins Sonja, Hanna og Heimir. Frumtamningar að baki og framundan þjálfun á meira tömdum hrossum. Þriðjudagurinn var langur og strangur hér á...
more-news
|
|
08.03.2010 - PRÓF Á MORGUN!!!!!!
Það stendur mikið til á morgun á bænum. Hvorki meira né minna en þrjú frumtamningarpróf verða haldin hér á bæ. Þau sem taka próf eru Sonja sem er verknemi hér á Þingeyrum og svo fá...
more-news
|
|
05.03.2010 - Tásubros
Þegar verið var að skoða munna og tennur hrossa hér á miðvikudaginn þá voru hundarnir að sniglast í kring um okkur eins og alltaf þegar einhver er í hesthúsinu. Hún Tása hefur þróað með...
more-news
|
|
04.03.2010 - Tannadagurinn mikli
Í gær var tannadagurinn mikli haldinn hér á bæ. Sigríður Björnsdóttir dýralæknir mætti á svæðið og farið var upp í flestalla hestana í hesthúsinu, allavega þá sem hægt...
more-news
|
|
03.03.2010 - Þetta er ekki frétt
Myndin sem hér birtist hefur hangið á ískápnum hér á heimilinu í nokkur ár og var klippt út úr Morgunblaðinu af þeirri ástæðu að á henni sjást hreint ótrúleg tilþrif...
more-news
|
|
23.02.2010 - Tvíburi með mömmu sinni
Það tókst ekki að ná mynd af tvíburafolöldunum saman þennan daginn en hér kemur ein af Dimmalimm með örverpinu henni Þumalínu sem þessa dagana minnir á furðuskepnu úr grárri forneskju, kafloðin...
more-news
|
|
02.02.2010 - Sætar stelpur í reiðtíma
Í allan fyrravetur komu hingað vikulega í reiðtíma gullfallegar og duglegar sveitastelpur úr Vatnsdalnum og núna eru þær mættar aftur til að læra hjá Christínu. Þessar duglegu stelpur eru dætur Jóns...
more-news
|
|
21.01.2010 - Gaman saman....
Þá er rútínan komin í gang sem betur fer og allt komið á fullt swing í hesthúsinu. Hvert einasta pláss fullskipað af efnilegum og skemmtilegum tryppum. Meðalaldurinn ekki hár, flestallt ung tryppi en þó einn...
more-news
|
|
04.01.2010 - Þá fer allt af stað
Jæja þá er komið að því. Hross komin á hús og allt að fara í fullan gang við tamningar og þjálfun. Verkneminn Sonja Noack mætt á svæðið og búið að taka út tamningatryppi...
more-news
|
|
23.10.2009 - Hringvöllur verður til
Jæja - þá er komið að því sem lengi hefur verið talað um, verið að búa til hringvöll á Þingeyrum. Um þetta er búið að hugsa og tala árum saman en einhvernveginn aldrei verið byrjað enda...
more-news
|
|
12.10.2009 - Haldið í hausthagana
Á meðan guðhræddir og góðir menn fóru til kirkju í gær þá var hér á bæ farið í gegn um hrossaflotann, skipt upp í hópa, gefið ormalyf og klipptir hófar þar sem á þurfti...
more-news
|
|
01.10.2009 - Beisli í pásu
Nú er þessi dásamlega árstíð haustið að ganga í garð af fullri alvöru. Frost á næturnar og snjallkaldir tærir haustmorgnar taka á móti manni í dagrenningu. Haustið er góður tími...
more-news
|
|
20.09.2009 - Folatittir
Letin er svo mikil hér á bæ (eða vantrú á eigin ræktunargetu) að yfirleitt hefur verið gefist upp á því að halda stóðhesta enda þurfa slíkar skepnur að vera alveg sérstakar til að slíkt...
more-news
|
|
14.09.2009 - Sveitabrúðkaup
Það er nokkuð ströng regla hér á heimasíðunni að skrifa einungis fréttir sem tengjast hestum og hrossabúskap og halda persónulegum uppákomum heldur til hlés enda ólíklegt að nokkur hafi áhuga...
more-news
|
|
31.08.2009 - Nýtt listaverk í reiðhöllinni
Hún Susan Harris sem búin er að vera hjá okkur síðustu daga að kenna er ekki einungis frábær reiðkennari og hestateiknari heldur virðist geta hvað sem er þegar kemur að myndlist. Þessa fallegu mynd málaði hún...
more-news
|
|
30.07.2009 - Fortamingar þetta árið.
Þá eru þriggja vetra tryppin komin á hús og verið að fortemja þau til að kynnast þeim og spara tíma næsta vetur. Í fyrra voru þau einungis 3 í árganginum en eru núna hvorki meira né minna en...
more-news
|
|
30.07.2009 - Karakterinn Birtingur
Það var ekki hægt að stilla sig um að hlaupa út á tún um daginn og taka myndir af honum Birtingi þar sem hann svaf í sólinni - tilgangurinn var að ná mynd af honum steinsofandi en auðvitað vaknaði hann um leið...
more-news
|
|
24.07.2009 - Rekið yfir Hóp
Einn af ljósmyndurunum sem var hjá okkur í síðustu viku sendi okkur þessa fallegu mynd sem tekin var síðasta daginn sem myndað var. Reksturinn leiðir Eggert á Bjargshóli og er myndin tekin úr Vaðhvammi til austurs þegar...
more-news
|
|
20.07.2009 - Tónleikar í Þingeyrakirkju
Þriðjudaginn 28 júlí munu Gunnar Kvaran og Guðný Guðmundsdóttir halda tónleika í Þingeyrakirkju og hefjast þeir klukkan 20. Allir eru velkomnir á tónleikana og er þetta einstakt tækifæri til að...
more-news
|
|
13.07.2009 - Yfir strikið....
Það verður að segjast eins og er að flestir sem hingað koma til að gista hjá okkur í gamla bænum ganga vel um og reyna að taka til eftir sig þegar farið er úr húsinu. En alltaf þarf þó að fara yfir hlutina...
more-news
|
|
13.07.2009 - Þvottur á snúru
Upp á síðkastið hefur verið margt um manninn á Þingeyrum og margir gist eins og oft er nú á þessum árstíma. Þvotturinn er oft ansi mikill og margar ferðirnar út á snúru. Sumir hafa orðið til...
more-news
|
|
01.07.2009 - Ester group 2009
Jæja enn og aftur hafa þær komið og farið amerísku vinkounurnar okkar sem hafa heimsótt okkur í lok júní í 7 ár. Ótrúlegt en satt. Til að byrja með áttum við von á einni heimsókn...
more-news
|
|
20.06.2009 - Tvö ný folöld
Þá eru þær Mirra og Ösp kastaðar og báðar komnar undir hesta aftur. Mirra kom með brúnblesóttan hest undan Tinna frá Kjarri. Alltaf gaman að fá sjaldgæfa liti. Ösp kom hins vegar með rauðblesóttan...
more-news
|
|
31.05.2009 - Hjá fræga fólkinu í útlöndum
Það er alltaf gaman að fá fréttir af hestum sem hér hafa verið ræktaðir, aldir upp, tamdir og seldir öðrum. Og hér er frétt af einum slíkum. Hesturinn sem um ræðir heitir Öðlingur og er undan sómahryssunni...
more-news
|
|
16.05.2009 - Hedda fer á nýjan stað
Hún Hedda eða Hedvig Maria Camilla Alhsten sem er búin að vinna hjá okkur í allan vetur vann síðasta daginn sinn í gær og fer nú að vinna í Grafarkoti í sumar. Þau eru heppin að fá hana því...
more-news
|
|
11.05.2009 - Fleiri myndir af tvíburum
Tvíburafolöldin okkar dafna vel og allt hefur gengið mjög vel í dag þannig að vonir vaxa um að upp muni komast tvö lífvænleg hross. Hér koma nokkrar myndir í viðbót sem teknar voru í dag þegar litlu hrossin...
more-news
|
|
05.05.2009 - Fyrsta folald vorsins
Fríða Framtíðardóttir varð fyrst til þess að kasta á Þingeyrum þetta vorið og kom með rauða hryssu undan Huginn frá Haga. Hryssan gæti reyndar orðið grá undan gráum hesti en það kemur...
more-news
|
|
05.05.2009 - Krummahreiður á kirkjuþakinu
Síðustu vikur hefur mikið gengið á við Þingeyrakirkju. Krummahjón hafa verið að byggja sér stærðarinnar hreiður á kirkjuþakinu og er nú kominn heljarinnar haugur af sprekum, gömlum beinum, plastspottum...
more-news
|
|
20.04.2009 - Hestastelpur
Það er yfirleitt líf og fjör í hesthúsinu á Þingeyrum og kynjahlutföllin oftast á annan veginn, þ.e. kvenþjóðin í meirihluta. Gunnar húsbóndi má hafa það að í kring um...
more-news
|
|
09.03.2009 - Litla systir Garps
Þegar Táta Garpsmamma var gefin til góðra manna þá var um það talað að kannski fengi hún einu sinni að eignast hvolpa og við hér á Þingeyrum að velja okkur einn. Núna hefur Táta fjölgað sér og fyrir um það bil mánuði fæddust 3 gullfallegar tíkur sem eiga heima með mömmu sinni, Tátu á Skrauthólum...
more-news
|
|
25.02.2009 - Nýtt hestakyn??? Nei bara hún Von með skeggið sitt
Sumir hestar hafa afgerandi einkenni sem gerir þá sérstaka. Hún Von sem er undan honum Fonti frá Feti er alveg einstaklega skeggprúð, svo mikið að ástæða þótti til að taka af henni mynd og setja hér á heimasíðuna. Skeggið er silkigljáandi, óvenjulega sítt og minnir einna helst á yakuxa. Þetta gerir það...
more-news
|
|
30.01.2009 - Heim á leið úr fyrsta rekstri vetrarins
Loksins komu tími og veður til að fara í rekstur með tryppahópinn. Farið var að venju í Sveinsstaði og þar tók Heimir tamningamaður stórbóndans á Sveinsstöðum á móti okkur með kaffi og kökum, þar sem bóndinn sjálfur var á leiðinni heim úr Reykjavík með splunkunýjan þjóðfélagsþegn. Já það er komin önnur...
more-news
|
|
27.01.2009 - Ljósmyndanámskeið á Þingeyrum
Dagana 12 – 18 júlí 2009 munu 8 atvinnuljósmyndarar frá Bandaríkjunum dvelja á Þingeyrum og taka myndir af íslenska hestinum. Um er að ræða hóp sem hefur ferðast víða um heim til að taka myndir af hestum og nú er förinni heitið til Íslands í fyrsta sinn. Ljósmyndararnir dvelja á Þingeyrum í 5 daga...
more-news
|
|
16.01.2009 - Tamningar komnar á fullt
Jæja - loksins, loksins eru tamningar komnar á fullt hér á bæ. Hesthúsið snurfusað og fínt og búið að ganga frá næstum öllu. Komin þessi fína hestasturta og gúmmímottur á öll gólf. Hesthúsið fullt af gæðingsefnum og allt fer vel af stað. Komnar 3 tamningakonur á svæðið sem vinna allan liðlangann...
more-news
|
|
27.12.2008 - Kúkinn út, hrossin inn.
Jæja þá er loksins að koma að því að fylla hesthúsið góða af hrossum. Nokkur búin að vera inni um tíma, en í næstu viku mæta tamningakonurnar á svæðið og þá fer allt á fullt. Karlmennirnir á bænum hafa verið duglegir að undirbúa fyrir okkur stelpurnar, moka haughúsið, setja upp hestabað,...
more-news
|
|
16.10.2008 - Á snúrunni........
Fyrir taugaveiklað og ofvirkt fólk er fátt betra eða meira róandi en að sitja með prjóna. Það er allavega betra en að reykja og drekka, er það ekki? Þessi kvenlega dyggð hefur verið stunduð hér á bæ í nokkrum mæli.....af húsfreyjunni en ekki húsbóndanum, það er víst betra að taka það fram. Í fyrra var...
more-news
|
|
01.10.2008 - Fimiþjálfun, hopp og hí
Það er eilíft verkefni hins góða þjálfara að fegra og bæta hreyfingar hestsins síns, helst á þann hátt að hesturinn endist lengur en hann mundi gera án þjálfunar. Hinir hreintrúuðu klassísku meistarar trúðu og trúa því að maðurinn eigi einungis að þjálfa hreyfingar sem eru hestinum eiginlegar og hann...
more-news
|
|
15.09.2008 - Nýtt útilistaverk á Þingeyrum
Hér sjáið þið nýjasta útilistaverkið á Þingeyrum, nýja landamerkjagirðingin hans Gunnars. Sú gamla var orðin lúin og hélt me,me frá nágrannabæjunum ekkert allt of vel í burtu, enda rafmagnsgriðing og hafa íslenskar kindur verið þekktar fyrir að taka ekki mark á svoleiðis "plat" girðingum heldur...
more-news
|
|
02.09.2008 - - Líkt og vængjablak -
Síðustu daga hafa dvalið hér á Þingeyrum 6 þýskar listakonur og íslendingurinn Jón Thór Gíslason. Konurnar eru í meirihluta og þær eru: Alexa Daerr, Viola Kramer, Maria Schátzmúller, Ulrike Oeter, Margrét Schopka og María Uhlig. Fyrir 10 árum kom þessi sami hópur hingað og setti upp listaverk vítt...
more-news
|
|
24.08.2008 - Á námskeiði í USA
Vikuna 13 - 20 ágúst var farið til Bandaríkjann til að halda námskeið með reiðkennaranum Susan Harris (www.anatomyinmotion.com) á búgarðinum Bel Di (áður Helms Hill) í New York. Á námskeiðunu voru 7 ungar stúlkur frá Bandaríkjunum og Íslandi og fyrirhugað er...
more-news
|
|
24.08.2008 - Sónarskoðað frá Smára, Tinna og Feldi
Á föstudag var sónarskoðað frá þeim þremur stóðhestum sem hafa verið hér á Þingeyrum hér í sumar, Smára frá Skagaströnd, Feld frá Hæli og Tinna frá Kjarri. Egill dýralæknir kom og skoðaði heilan helling af hryssum og var útkoman nokkuð góð. Tinni og Feldur verða áfram...
more-news
|
|
29.07.2008 - Þreyttur........
Það getur verið mjög þreytandi að fara í hestaferð.......Garpur er búinn að liggja flatur síðan hann kom heim enda þarf hann ekki að ganga frá drasli, þrífa og taka til eins og mannfólkið með allt sitt drasl og dót............En hann þurfti reyndar að hlaupa á eigin fótum á meðan...
more-news
|
|
28.07.2008 - Loksins tamingatúr með meiru.
Jæja það var ekki seinna að vænna að skella sér í smá tamningarekstur áður en dregið er undan tryppum og þau rekin á fjall en það stendur til á miðvikudag. Haldið var sem oft áður inn á Grímstunguheiði og gist tvær nætur í Öldumóðuskála en það er gangnamannakofi þeirra Grímstunguheiðarmanna í leitum...
more-news
|
|
16.07.2008 - Innimyndir
Kom því loksins í verk að taka nokkrar myndir inni í nýja hesthúsinu og birtast þær hér. Ekki hefur enn fundist tími fyrir "opnunarhátíð".........enda nóg annað að gera þessa dagana með heyskap á fullu og slatta af gestum og gangandi, eða kannski öllu heldur ríðandi alla daga. Tamningar hafa gengið...
more-news
|
|
12.07.2008 - Feldur frá Hæli á Þingeyrum
Í morgun var tveimur stóðhestum sleppt til hryssna hér á Þingeyrum. Þá eru þeir orðnir þrír gæðingarnir sem sinna hryssum hér þetta sumarið. Það eru þeir Smári frá Skagaströnd, Tinni frá Kjarri og Feldur frá Hæli. Hann var heldur kátur folinn þegar hann hitti hryssuhópinn sem beið eftir honum og...
more-news
|
|
11.07.2008 - Tinni frá Kjarri fær líka að hitta hryssur.
Tinni frá Kjarri fékk að hitta sinn hryssuhóp í sólinni í gærmorgun. Tinni er eins og nafnið bendir til tinnusvartur og tignarlegur, en hann er undan Stálamóðurinni Jónínu frá Hala og Sjóla frá Dalbæ. Það sem einkennir þennan hest er hversu yfirvegaður og elskulegur hann er í umgengni. En hann...
more-news
|
|
10.07.2008 - Óvænt forsetaheimsókn!!!
Hann Óli á Sveinsstöðum hringdi hingað í gærmorgun og spurði hvort hann mætti koma með gesti á hlaðið og stoppa um stund. Vantaði svo fylgd yfir vað á Húnavatni til að geta riðið upp hinar yndislegu reiðgötur fram eylendið og í Sveinsstaði. Það var auðsótt mál en ekki grunaði okkur að í...
more-news
|
|
10.07.2008 - Nýr í hópinn....
Þá er Tíbrá loksins köstuð - kom með alrauðan hest undan Kaspari frá Kommu, léttbyggðan og fríðan. Hann hlýtur nafnið Þróttur en hann er þriðja afkvæmi móður sinnar sem á fyrir Flygilsdóttirina Þraut sem nú er í tamningu og lofar góðu og Roðadóttir sem er veturgömul og heitir Þula. Tíbrá er strax...
more-news
|
|
29.06.2008 - Og allar komu þær aftur.
Í sjötta sinn komu þær í heimsókn vinkonur okkar frá Ameríku. Þegar þær komu í fyrsta sinn hvarflaði ekki að neinum að þær mundu koma aftur en viti menn heimsóknin er orðinn árlegur viðburður sem er alltaf að taka á sig nýja mynd. Smá saman hefur hópurinn aðlagast lífinu hér á stað og allir eru...
more-news
|
|
29.06.2008 - Sullið byrjað....
Jæja - enn eina ferðina er komið sumar og alla daga blautir skór og sokkar á ofninum í bakdyrunum. Reiðtúrar yfir Hóp og Húnavatn verða daglegt brauð og hér sést Dísa í einni fyrstu ferðinni þetta vorið yfir Húnavatnið. Nú er ferðamannatíminn að ná hámarki og minnir hlaðið við hesthúsið stundum...
more-news
|
|
29.06.2008 - Staðfest fyl í fimm hryssum!
Þá er búið að leiða sex hryssur undir stóðhesta þetta vorið hér á Þingeyrum. Dömurnar voru sónarskoðaðar á föstudaginn og reyndust allar fengnar. Freyja og Dimmalimm eru fengnar við Blæ frá Hesti, Hrönn við Sólon frá Skáney, Fríða við Huginn frá Haga og Sókn við Akki frá Brautarholti. Síðan var Emblu...
more-news
|
|
28.05.2008 - Loksins kom hryssa -bleikálótt það að auki!
Jæja - eftir að hafa tekið á móti þremur brúnum hestum þá kom loksins hryssa í heiminn á Þingeyrum þetta vorið. Þetta er gullfalleg, bleikálótt dama undan henni Sókn Ófeigsdóttur frá Flugumýri og Arði frá Brautarholti. Hún virðist vera ágætlega samansett, en eyrun mættu vera aðeins minni. Þetta...
more-news
|
|
15.05.2008 - Hesthús, næstum alveg klárað!
Hér sést góð yfirlitsmynd af hesthúsinu og reiðskemmunni. Helgi Gunnarsson klifraði upp á þak á gamla hesthúsinu til að ná myndinn. Af Helga er það að segja að hann náði þeim frábæra árangri að komast í fyrstu tilraun inn í Listaháskóla Íslands og mun hefja nám þar í haust. Við erum að sjálfsögðu...
more-news
|
|
07.05.2008 - Stálabarn númer tvö.
Jæja þá er hestagullið hún Freyja köstuð og í þetta sinn með mósóttan hest undan Stála frá Kjarri. Þá eru Stálasynirnir orðnir tveir á bænum þetta vorið. Neita því ekki að gaman hefði verið að fá sitt hvort kynið en það ber að þakka tvo fallega og heilbrigða hesta. Freyja er dóttir Framtíðar...
more-news
|
|
01.05.2008 - Tinni frá Kjarri.
Þessi efnilegi stóðhestur heitir Tinni frá Kjarri og verður til afnota á Þingeyrum í sumar. Tinni er undan gæðingamóðurinni Jónínu frá Hala sem einnig er móðir Stála frá Kjarri og Sjóla frá Dalbæ. Í gær lagði frúin land undir fót með eigendum hestsins Helga og Helgu í Kjarri til að líta gæðinginn...
more-news
|
|
25.04.2008 - Woody er kominn heim!
Í haust sem oft áður fór frúin til Bandaríkjanna til að kenna og fræðast um hesta. Stórsýningin Equine Affaire i Springfiend er einn af reglulegum viðkomustöðum sem eru heimsóttir í þessum ferðum enda þar margt að sjá og læra. Á sýningunni í haust var handlaginn "cowboy" að saga út stór hesthöfuð...
more-news
|
|
25.04.2008 - Gullmolinn er fæddur heill á húfi
Loksins eftir langa mæðu þá er hún Dimmalimm orðin mamma, 16 vetra að aldri. Ef hún væri kona þá þætti þetta alveg á mörkunum - en það er þó ekki óþekkt að berist fréttir af rúmlegra sextugri konu á Ítalíu sem fæðir barn eða jafnvel börn. Þannig að þrátt fyrir aldur móðurinnar þá er akvæmið...
more-news
|
|
19.04.2008 - Fyrir utan gluggann....minn!
Þessi yndislegu dýr, hundarnir á heimilinu Garpur og Hneta, eru einstaklega húsbóndaholl og skemmtileg. Svona kúra þau fyrir utan eldhúsgluggann þegar frúin er inni um helgar að taka til og stússast í eldhúsinu. Ekki leiðinleg sjón að líta út og sjá þessa tryggu félaga kúra á hlaðinu. Þó Hneta...
more-news
|
|
19.04.2008 - Ólétt..........
Þetta er hún Dimmalimm frá Breiðavaði sem er þessa dagana að bíða eftir að kasta fyrsta folaldinu sínu 16 vetra gömul og geri aðrir betur! Eftir nokkur ár af "specail treatment" þar sem allra leiða var leitað til að koma í hana folaldi þá tókst loksins snillingunum Páli Stefánssyni dýralækni...
more-news
|
|
13.04.2008 - Ekki alveg að virka...
Þær eru hálf varnarlausar blessaðar heimilisrjúpurnar þessa dagana. Snjóhvítar og ennþá í vetrarbúningi þó svo jörð sé orðin auð og allur snjór horfinn. Þær gera þess vegna tilraunir til þess að "fela" sig upp við hitt og þetta hér heim við bæ, meðal annars þennan ljósastaur sem gerði lítið...
more-news
|
|
09.04.2008 - Nýr fjölskyldumeðlimur!
Þetta er hún Hneta sem kom hér í heimsókn einn daginn fyrir nokkru og fór ekki heim aftur. Hún er ættuð frá óðalssetrinu á Sveinsstöðum frá Ólafi stórbónda og Ingu Sóley hans fallegu og góðu konu. Ekki skemmir fyrir að dýrið er feðrað af hinum stórættaða Vask frá Steinnesi, sem gæti mögulega verið...
more-news
|
|
18.03.2008 - Viti menn!
Haldiði ekki að kjjeellingin sé bara loksins búin með síðustu stig Knapamerkjanna. Mikið var að beljan bar eins og kallinn sagði hér í denn. En grínlaust.....eftir að hafa verðið með Knapamerkin á hælunum í nærri 4 ár þá er nú ekki annað hægt en að viðurkenna að það fylgdi því töluverður léttir að...
more-news
|
|
16.03.2008 - Já -við erum enn á lífi!
Eftir að hafa vanrækt heimasíðunna upp á síðkastið vegna mikilla anna þá er hér með lofað að bæta um betur. Voandi tekst að standa við stóru orðin enda töluverður mórall verið í gangi vegna lélegrar frammistöðu í fréttaflutningi og pistlaskrifum. Síðustu daga hefur þurft að klípa sig reglulega í...
more-news
|
|
17.01.2008 - Jákvæðar og duglegar tamningastelpur.
Það er ekki ónýtt að hafa gott starfsfólk í hesthúsinu þegar húsráðendur hafa allt of mikið að gera. Húsbóndinn við að klára margumrætt hesthús og húsmóðirin við allt annað en að sinna því sem er efst á óskalistanum, þ.e. ríða út. Þrátt fyrir það er mikið unnið í hesthúsinu og þar ráða ríkjum...
more-news
|
|
17.01.2008 - Stíur að fæðast..!
Hún er falleg eikin sem klæðir stíurnar í nýja hesthúsinu. Búið að vinna hörðum höndum síðustu daga að klæða stíur og klára frágang á vatni enda verður að taka inn um helgina hvort sem húsið verður alveg tilbúið eður ei. Margir hestar bíða úti eftir að komast ínn og gamla hesthúsið vægast sagt...
more-news
|
|
06.01.2008 - Klukkan tifar....
Já klukkan tifar heldur betur hér á Þingeyrum þessa dagana. Síðustu handtökin í nýja hesthúsinu taka tímann sinn og óþolinmæðin magnast að koma inn hrossum og geta farið að snúa sér að öðru en stússast í byggingavinnu. Margir hafa komið að verki í hesthúsinu síðustu vikur og með þessari frétt...
more-news
|
|
29.12.2007 - Óvæntur gestur, sem dó í heimsókninni
Við stíumokstur í fyrradag rakst frúin á illa hrakið en lifandi fuglgrey í einni stíunni. Fuglinn var ansi vankaður og ómögulegt að segja til um í hvaða hrakningum hann hafði lent áður en hann lenti í hesthúsinu á Þingeyrum. Þar sem fuglafræðikunnáttu heimilisfólks er mjög áfátt þá var því slegið...
more-news
|
|
28.12.2007 - Flottar hestapeysur eftir mömmu.
Hún mamma mín Elísabet Thoroddsen er frábær hönnuður og handverkskona og kann að fara með flest sem viðkemur prjóni og saumaskap. Nú er í undirbúningi að bæta nýjum tengli inn á heimasíðuna þar sem sérhannaðar hestapeysur úr úrvals, sérvalinni íslenskri ull frá Þingborg í Flóa verða til...
more-news
|
|
27.12.2007 - Vetrarríki í norðri
Það hefur verið sannkallað vetrarríki síðustu daga hér á Þingeyrum og allt hvítt svo langt sem augað eygir. Þrátt fyrir að lífið verði efiðara fyrir fugla og útigönguhross þá er ekki annað hægt en dáðst að vetrarfegurðinni og hinni mjallhvítu veröld sem ríkir núna allt í kring um...
more-news
|
|
22.12.2007 - Vinnumaður
Svona líta menn út eftir að hafa hannað, smíðað og pússað innréttingar í heilt hesthús. Takið eftir þreytusvipnum í kringum augun og óhreinindunum sem eru gróin inn í vinnulúið aldlit og örum settar hendur sem eru allar í suðuslettum og sóti. Orðið barnaþrælkun í sinni svörtustu mynd kemur...
more-news
|
|
05.12.2007 - Hjálp - "mig vantar góðan eiganda"!
Hæ, hæ,....mig vantar góðan eiganda sem hefur góðar aðstæður til að halda kött. Ég er 5 vikna, bröndótt læða, spök, róleg og að sjálfsögðu gullfalleg. Mamma mín er með yndislegt geðslag og hefur séð um að halda hesthúsinu á Þingeyrum músfríu í mörg ár. Hún er frábær kisa, taugasterk og harðgerð...
more-news
|
|
30.11.2007 - Loksins, loksins......!
Það er ekki hægt að segja að fréttunum hafi ringt inn á heimasíðuna upp á síðkastið. Frúin búin að vera á flakki í útlöndum, í mörg önnur horn að lína en heimasíðuhornið og myndavélin í láni hjá yngri syninum. En nú skal bætt úr á næstu dögum. Komnar hugmyndir að nokkrum "djúsí" pistlum og fréttasöfnun...
more-news
|
|
17.10.2007 - Gott að kúra.....z.z.z.z.z
Ég gat ekki stillt mig um að taka mynd af henni Flugu sem er í pössun hér á meðan eigandinn, Hanna Lindmark frá Svíþjóð gengur menntaveginn á Hrossaræktarbraut Hólaskóla. Fluga er eins og Garpur, heimilishundurinn, að sjálfsögðu alltaf með tamningafólkinu í hesthúsinu...
more-news
|
|
14.10.2007 - Það potast........hægt og bítandi
Nú er komið rétt um ár síðan byrjað var að byggja nýja hesthúsið, ótrúlegt en satt. Síðan hefur margt gerst.......og í stað stórrar svartrar holu er nú komin glæsileg bygging með rafmagni og vatni. Þeir sem hafa byggt hús vita að handtökin eru æði mörg áður en allt er tilbúið og núna er unnið...
more-news
|
|
14.10.2007 - Síðasta sónarskoðun sumarsins.
Á föstudag lauk formlega stóðhestahaldi á Þingeyrum þetta árið. Sónarskoðað var frá gæðingnum Akki frá Brautarholti en undir hann var haldið 47 hryssum og eru 40 með staðfest fyl. Hesturinn var í hryssuhópnum fram að sónarskoðun þannig að þessi tala gæti hækkað og er það dágóð fyljunarprósenta. Á...
more-news
|
|
30.09.2007 - Tryppin komin heim.
Í gær komu unglingarnir okkar heim af fjalli frískir og fallegir. Allir skiluðu sér, 37 stykki og það var mikill léttir þegar búið var að finna allt og koma í dilk. Afrétturinn okkar er í Víðidalsfjalli og réttað í Undirfellsrétt í Vatnsdal, en sú er heldur minni í sniðum en hin víðfræga Laufskálarétt...
more-news
|
|
30.09.2007 - Tamingar að hefjast á ný
Jæja, þá er komið að því að hefjast handa við frumtamningar á Þingeyrum. Komnar tvær kjarnorkukonur til að temja og allt að fara á fullt. Búið að fylla húsið af þriggja vetra tryppum sem eiga að læra lífreglurnar undir handleiðslu þeirra Nadine Semmler, sem er útskrifaður tamningamaður og þjálfari...
more-news
|
|
23.09.2007 - Gletta farin til nýrra heimkynna
Hrossakaup geta verið af ýmsum toga og mismikið fyrir þeim haft. Fyrir rúmu ári þá komu í heimsókn hingað að Þingeyrum 3 bandarískar mæðgur sem báðu um leyfi til að fá sér göngutúr og taka myndir af folöldum. Það er svo sem ekki í frásögur færandi né í fyrsta skipti sem fólk kemur...
more-news
|
|
20.09.2007 - Úlfurinn á Þingeyrum!
Hér á síðunni undir liðnum "um okkur" er að finna upplýsingar um hann Garp en það er heimilishundurinn á bænum. Garpur er einstaklega geðgóður og blíður hundur sem gegnir mikilvægu hlutverki á bænum sem vinnuhundur. Hann sparar okkur ófá sporin með því að sækja og reka skepnur, aðallega hross...
more-news
|
|
11.09.2007 - Maður á hestbaki
Yfir sumartímann koma margir ríðandi hingað heim að Þingeyrum. Sumir vel ríðandi aðrir ekki svo vel ríðandi, en flestallir mjög ánægðir. Þessir félagar komu til dæmis hingað yfir Þingeyrasand og voru svo óheppnir (eða heppnir) að frúin var úti með myndavélina og sýndi þá ósvífni að smella af. Ég...
more-news
|
|
11.09.2007 - Munið að henda rúlluplastinu!
Þessa skemmtilegu mynd tók hún "Dísa", Herdís Reynisdóttir sem er heimalingur hér á Þingeyrum. Það er engu líkara en að folöldin séu að segja, "Hvað á það að þýða að skilja þetta plast eftir hér úti í gvuðsgrænni náttúrunni"?
Það verður víst að viðurkennast að myndin er tekin...
more-news
|
|
04.09.2007 - Þingeyrahátíð 9 september 2007
Boðið verður til mikillar hátíðar á Þingeyrum í Austur-Húnavatnssýslu sunnudaginn 9. september n,k.
Þá verða 130 ár liðin frá vígslu Þingeyrakirkju, einnar elstu og merkustu steinkirkju landsins. Þingeyraklaustur var áður ein merkasta trúar- og menningarmiðstöð landsins, þar sem m...
more-news
|
|
01.09.2007 - Þingeyrakirkja í svart hvítu
Hann Helgi Gunnarsson, yngri sonurinn á bænum er afar snjall ljósmyndari og á heiðurinn af mörgum myndum sem eru notaðar hér á heimasíðunni. Hann er kannski ólíkur öðrum ljósmyndurum að því leyti að hann hleypur ekki út að taka myndir þegar sólin skín og birtan er mest heldur fer hann oftar út...
more-news
|
|
01.09.2007 - Íbúarnir í mjólkurhúsinu
Það væri einmannalegra lífið í hesthúsinu ef við hefðum ekki félagsskap þeirra Bertu og Snoppu. Þessar tvær vinkonur eru óendanleg uppspretta skemmtilegra uppátækja sem geta verið allt frá því að sýna hundinum miskunnarlausa stjórnsemi og yfirgang til þess að heimta mjólk og klapp af þvílíkri frekju...
more-news
|
|
28.08.2007 - Engar venjulegar innréttingar
Ne...hei;...þetta eru sko engar venjulegar hesthúsinnréttingar! Þær eru smíðaðar af verkfræðinemanum og þúsundþjalasmiðnum sjálfum, Andra Gunnarssyni -IS-1983-156-666. Ég get sagt ykkur það að meiri tími fór í að hanna þessar flóknu grindur en sjálfa Kárahnjúkavirkjun enda næsta víst...
more-news
|
|
28.08.2007 - Spennandi viðbót í hrossahópinn
Þingeyrabúið festi nýlega kaup á ungri leirljósri, hryssu sem sést hér á myndinni. Þetta er hún Rödd frá Útnyrðingsstöðum og seljandinn var Ragnheiður Samúelsdóttir, betur þekkt sem Ragga Sam. Hryssan er einstaklega geðgóð og vel frumtamin en hún er 4 vetra undan gæðingafaðirnum Gusti frá Hóli...
more-news
|
|
27.08.2007 - Á Þingeyrasandi
Þingeyrasandur er sannkallað ævintýraland þar sem margt skrítið og skemmtilegt leynist. Ljósmyndarinn og heimshornaflakkarinn á bænum, Helgi, fór "í sandinn" með myndavélina og tók þessar skemmtilegu myndir. Heimilishundurinn Garpur fór með og kom heim angandi af alls kyns hræjum og ógeði sem hann...
more-news
|
|
09.08.2007 - Menningarviðburður á heimsmælikvarða
Miðvikudaginn þann 8 ágúst héldu Gunnar Kvaran og Elisabet Waage tónleika í Þingeyrakirkju þar sem þau fluttu verk eftir Schubert, Rachmaninoff, Speight og Vivaldi. Stundin var töfrum líkust og tónlistin hljómaði einstaklega fallega í kirkjunni sem hefur óvenjulegan hljómburð og myndaði fullkomna...
more-news
|
|
06.08.2007 - Skemmtilegri heimsókn að ljúka
Síðustu daga hefur dvalið hjá okkur einstaklega skemmtilegur og skapandi stelpuhópur. Í hópnum voru hestastelpur frá Bandaríkjunum, Íslandi og Þýskalandi. Skipuleggjendur ferðarinnnar voru þær Martina Gates og Nicky Esdorn frá Bandaríkjunum og var tilgangurinn að efla samstarf og samskipti meðal...
more-news
|
|
17.07.2007 - Þingeyrar-þar sem fræga fólkið ríður út!
Síðustu daga hefur dvalið á Þingeyrum hin kunna sjónvarps og veðurfréttakona Soffía Sveinsdóttir. Soffía er að leita sér að framtíðarkeppnishesti og þá er nú um að gera að vanda valið. Hesturinn sem hlaut náð fyrir augum stjörnunnar og hún prófaði hér á bæ er hann Týr frá Þingeyrum og sjást þau hér...
more-news
|
|
17.07.2007 - Meira í dag en í gær......:)
Nú er að verða verulega spennandi að fylgjast með hesthúsbyggingunni enda gerast hlutirnir hratt þessa dagana í sól og blíðu. Húsið er komið upp eins og sjá má á myndinni, komnir gluggar, þakkantar, áfellur og hurðir. Andri Gunnarsson sér um að koma verkinu áfram með ódrepandi krafti og dugnaði...
more-news
|
|
03.07.2007 - Vinaheimsókn frá USA
Eldsnemma á mánudagsmorgun kvöddu góðar vinkonur frá USA Þingeyrar eftir að hafa dvalið í viku í góðu yfirlæti. Þetta var í fimmta skipti sem hópurinn heimsótti okkur en þessi árlega ferð sem varð til fyrir algjöra tilviljun hefur eignast sjálfstætt líf sem byggist upp á vináttu og skemmtilegheitum...
more-news
|
|
19.06.2007 - Hesthúsið rís af grunni
Nú er heldur betur farið að sjást að það er verið að byggja nýtt hesthús á Þingeyrum og byggingin loksins orðin sýnileg. Búið er að reisa húsið og verið að setja klæðninguna á þessa dagana. Veðrið hefur leikið við vinnukallana og hestarnir farnir að venjast þessu nýja ferlíki á hlaðinu. Reiðskemman er...
more-news
|
|
19.06.2007 - Enn fjölgar í stóðinu
Loksins kom hún Ösp með hryssu eftir að hafa eignast hestfolöld síðastliðin 3 ár. Litla hryssan sem fæddist í norðanþoku sunnudaginn 17 júní er jarptvístjörnótt og er undan Smára frá Skagaströnd. Það eru því bundnar við hana vonir sem hugsanlega ræktunarhryssu á Þingeyrum þar sem móðir hennar Ösp er...
more-news
|
|
11.06.2007 - Nýjasta viðbótin í stóðið á Þingeyrum
Þessi fríði og fallegi hestur er undan henni Sókn Ófeigsdóttur og Roða frá Múla. Hann hafði bæst í hópinn einn morguninn snemma í júní. Hann virðist vera mjög reistur og fer um á tölti og brokki og er nú þegar byrjaður að elta hundinn og stríða honum. Blesan er einstaklega falleg og ætti ekki að vera...
more-news
|
|
11.06.2007 - Embla frá Þingeyrum-IS-02-256-326
Hún Embla Freyjudóttir var byggingadæmd á kynbótasýningu á Blönduósi síðastliðinn þriðjudag og fékk einkunina 8,29 fyrir byggingu. Embla er afskaplega myndarleg og falleg hryssa með mikla útgeislun og lofar afar góðu í tamningu. Hún fékk 9 fyrir háls og herðar og bak og lend enda mjög reist og myndarleg...
more-news
|
|
24.05.2007 - Stóðhestar á Þingeyrum
Það verður líflegt í stóðhestahaldi á Þingeyrum í sumar og á húsi hefur Þristur frá Feti byrjað vertíðina og sinnir góðum hóp af hryssum. Á fyrra gangmál koma síðan þeir Kaspar frá Kommu, Borði frá Fellskoti og Akkur frá Brautarholti og verða fram eftir sumri. Það er því mikið umleikis að...
more-news
|
|
24.05.2007 - Sumarið framundan.
Sjaldan eða aldrei hefur verið bókað jafn mikið af gistingu og hagagöngu á Þingeyrum og í sumar. Gamla húsið er nánast fullbókað frá miðjum júní langt fram eftir sumri og margir ferðamenn bæði innlendir og erlendir sem ætla að ríða úr á Þingeyrasandi í sumar. Með hesthúsbyggingu og tamningum verður því...
more-news
|
|
17.05.2007 - Tamningar í vetur
Gamla hesthúsið á Þingeyrum hefur verið fullt af tamningahrossum í allan vetur. Tamningakonan Barbara Dittmar hefur borið hitann og þungann af daglegri starfsemi í hesthúsinu og búin að standa sig eins og hetja þar sem Helga hefur haft ansi mikið að gera við kennslu á Hólum og í Knapamerkjavinnu...
more-news
|
|
16.05.2007 - Hesthúsbygging á fullu
Nú er unnið á fullu við að byggja nýtt hesthús á Þingeyrum. Hesthúsið sem kemur til með að rúma 30 hross er úr límtré og verður tengt við reiðhöllina sem fyrir er á staðnum. Þegar nýja húsið verður tilbúið þá verður pláss fyrir á milli 40-50 hross á Þingeyrum í tveimur hesthúsum. Gamla húsið verður...
more-news
|
|
|
|