 Þingeyrakirkja setur óneitanlega svip á umhverfið þegar komið er heim að Þingeyrum. Kirkjan sem er hlaðin úr grjóti er einstaklega tignarleg og tilkomumikil og þegar komið er heim að henni blasir við mikið víðsýni til allra átta. Fyrsta klaustrið á Íslandi var stofnað á Þingeyrum snemma á 12. öld og stóð lengst allra klaustra á Íslandi allt til 1550. Steinkirkjan mikla sem nú stendur á Þingeyrum var byggð af Ásgeiri Einarssyni og var hún vígð 1877. Kirkjan var lengi í byggingu og grjótið í hana flutt frá Nesbjörgum, vestan við Hópið, á ís yfir vetrartímann og við það notaðir uxar fyrir sleða. Innviðir kirkjunnar og munir eru einstaklega fallegir, litríkur útskurður, stjörnuloft og altaristafla út alabastri. Fallegur kirkjugarður er við kirkjuna og ef gengið er um túnið umhverfis hana má sjá gamlar minjar allt frá landnámsöld, s.s. dómhring og leifar af gamla kirkjugarðinum. Á síðasta ári var lokið við byggingu þjónustuhúss við kirkjuna, Klausturstofu, en það er falleg bygging hönnuð af Guðrúnu Jónsdóttur arkitekt. Klausturstofan stendur fyrir norðan kirkjuna og hýsir snyrtingar fyrir ferðamenn og sýningasal þar sem sýndar verða minjar um Þingeyrakirkju.
 Þingeyrakirkja Klausturstofa
Kirkjan er opin daglega yfir sumartímann frá 9 - 5

|