
Á Þingeyrum er fengist við fleira en bara að temja og rækta hesta. Þar sem húsmóðirin er menntaður textílhönnuður þá fær sú ástríða útrás á kvöldin og þegar lausar stundir gefast af og til. Hönnunar og prjónaáhuginn kemur beint frá mömmu Elísabetu Thoroddsen, en hún var almáttug þegar kom að handverki og hönnun á öllum sviðum.
Allar peysur sem sjást hér á síðunni eru hannaðar og unnar af Helgu Thoroddsen og Elísabetu Thoroddsen og einungis notað í þær fyrsta flokks hráefni, ull, silki og móhair.
Á myndinni má sjá lopapeysu hannaða og prjónaða af Elísabetu, og er hún úr íslenskum Þingborgarlopa og jurtalituðu ullarbandi.
|